У нас вы можете посмотреть бесплатно Fyrirmyndarfrumkvöðlar - 1. þáttur_Gandur FTV или скачать в максимальном доступном качестве, видео которое было загружено на ютуб. Для загрузки выберите вариант из формы ниже:
Если кнопки скачивания не
загрузились
НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием видео, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу
страницы.
Спасибо за использование сервиса ClipSaver.ru
Í fyrsta þætti Fyrirmyndarfrumkvöðla er farið í heimsókn að bænum Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Þar verður rætt við þau Ásdísi Sigurjónsdóttur, Einar E. Einarsson og Sólborgu Unu Pálsdóttur, sem standa að framleiðslu smyrsla úr minkafitu undir vörumerkinu Gandur. Fyrirmyndarfrumkvöðlar eru framleiddir af Feyki og Skottu kvikmyndafjelagi, sem njóta styrkjar frá Uppbyggingasjóði Norðurlands vestra til þáttagerðarinnar. Um er að ræða sjö þætti. Í þáttunum er rætt við forsvarsmenn frumkvöðlafyrirtækja á Norðurlandi vestra. Í fyrstu sex þáttunum er fyrirtæki heimsótt og farið er yfir starfsemina, allt frá hugmynd til framleiðslu, og viðmælendur inntir eftir því hvernig ferlið gengur fyrir sig og hvernig staðið er að hinum ýmsu þáttum starfseminnar. Í lokaþættinum koma viðmælendur allra sex fyrirtækjanna saman, ásamt þriggja manna ráðgjafanefnd, og ræða um frumkvöðlastarf. Þáttagerðin er í höndum Árna Gunnarsson kvikmyndagerðarmanns, Berglindar Þorsteinsdóttur, ritstjóra Feykis og Kristínar Einarsdóttur, blaðamanns hjá Feyki. Þáttastjórnendur eru Berglind og Kristín en um upptökur og eftirvinnslu sér Árni Gunnarsson.