У нас вы можете посмотреть бесплатно Frances svartur #14 fluguhnýtingar myndband | Flugusmiðjan или скачать в максимальном доступном качестве, видео которое было загружено на ютуб. Для загрузки выберите вариант из формы ниже:
Если кнопки скачивания не
загрузились
НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием видео, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу
страницы.
Спасибо за использование сервиса ClipSaver.ru
Yður gefst nú áhorfandi góður loksins kostur á að styrkja rásina og hann Ívar Örn fyrir alla vinnuna, tímann og fyrirhöfnina sem liggur að baki. Þetta getur þú gert í gegnum PayPal-linkinn, eða ýtt á “SúperTakk” takkann. https://www.paypal.com/donate/?hosted... Í þessu myndbandi hnýtum við svartan Frances sem er löngu orðin nafntoguð fluga fyrir þann árangur sem flugan hefur náð í laxveiði. Flugan er útbreidd og er notuð víðast hvar þar sem Atlantshafs lax er veiddur á stöng. Upphaflega flugan sem var forveri Frances heitir Black Eyed Prawn eftir Peter Dean í Bretlandi. Flugan varð sígild næstum því samstundis klas um miðjan sjöunda áratuginn. Flugan ef nefnd eftir fröken Frances Hydon, en hún var aðstoðarhnýtari Peters Deane. flugu. Frances þarf vart að kynna fyrir veiðimönnum enda löngu orðin nafntoguð fyrir árangurinn sem hún hefur náð í laxveiði. Ég hnýti þessa reglulega fyrir fastakúnna sem vill ekkert annað og sá veiðimaður nær yfirleitt góðum árangri. Ef þú ert á leið í haustveiði á laxi þá mæli ég nú alveg með Frances í boxið! Íslenska útgáfan fór að sjást hér á landi seint á áttunda áratugnum og ekki er vitað beint hver hnýtti hana upphaflega eða stal hugmynd Peters og einfaldaði. Hvað sem því líður þá er hægt að hnýta Frances í mörgum lita afbrigðum þótt það svarta og rauða sé lang algengast. Þegar flugan kom fyrst fram hér á landi þráuðust margir veiðimenn við að nota hana og kölluðu hana "rækju" og líktu notkun hennar við að nota beitu. Sumir voru miklir prinsippmenn með þetta og notuðu fluguna alls ekki en aðrir létu til leiðast enda frábær fluga í alla staði! Vissilega lítur Frances út eins og rækja enda byggð á flugu sem ætlað var að líkja eftir rækju, en rækja er jú hluti af fæðu lax í sjónum þótt hún sé e.t.v. ekki aðalhluti fæðunnar. Allt að einu þá hafa raddir þessarra veiðimanna sem vildu ekki nota Frances horfið með tímanum en í dag erum við í svipuðu stigma með fluguna Squirmy - margir veiðimenn nota bara ekki Squirmy og segja hann ekki vera flugu. Jú sagan rímar alltaf og endurtekur sig jafnvel. Segja má að Frances sé enn þá vinsælasta laxaflugan á Íslandi ásamt flugum eins og Haugur, Sunray Shadow, Snældu, Munro Killer og fleiru flugum. Frances er uppáhald margra veiðimanna og kvenna, enda frábær fluga og margur hefur tekið maríulaxinn sinn einmitt á Frances. Ég mæli mjög mikið með að eiga Frances til í stærðu 10, 12, 14 og 16 bæði í rauðum og svörtum lit. Einnig má hnýta hana sem túpu í haustveiðina og er Frances fluga sem óhætt er að mæla með að eiga í boxinu ef fólk hyggur á laxveiði. Uppskrift: Höfundur: Upphaflega Peter Deane, en hér er hnýtt seinnitíma útfærsla. Öngull: Ahrex HR428G #14 Þráður: Semperfli Nano Silk 30D, svartur. Fálmarar: 4 stilkar af brúnum/hvítum hanafjöðrum. Stél: Síðufjöður eða stél af fasana (fer eftir stærð á flugunni). Búkur: Svart árórugarn, 2 þættir í aftari búk, 1 þáttur í fremri búk. Fjöður í vöf: Brún fjöður af hana hnakka. Vöf: Semperfli Oval gull tinsel í stærð small. (Augu: Valkvætt, en upphaflega flugan var með svörtum augum) Haus: Svartur, lakkaður með UV Solarez Bone Cure. “The greatest gift you can give to another fisherman is to put a good fish back.” -- Lee Wulff Kærar þakkir fyrir áhorfið! Til þess að hjálpa okkur að stækka, vinsamlegast setjið "like" á myndbandið, gerist áskrifendur að rásinni og deilið. Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: Facebook: / ivarsflyworkshop Instagram: / ivarsflyworkshop Twitter: / flyivar ______________________________________________________________________________________ Í samstarfi við: Ahrex Hooks, Iceland Fishing Guide, GFF & Flyfishingwaters https://www.ahrexhooks.com https://www.icelandfishingguide.com & https://www.fluguveidi.is https://globalflyfisher.com https://flyfishingwaters.com Tónlist: https://www.bensound.com Tölvupóstur: flugusmidjan@gmail.com #IvarsFlyWorkshop #AhrexHooks #fluguveidi.is #IcelandFishingGuide #flytyingoutlaw #outlaw #wildwest #flugusmidjan #flyfishing #fishing #flytying #catchandrelease #trout #troutfishing #browntrout #flyfishingaddict #flyfishingjunkie #flyfishinglife #fish #urridi #bleikja #lax #myrarkvisl #rainbowtrout #flytyingjunkie #troutbum #flyfishingnation #fishinglife #nature #outdoors #flytyingaddict #bassfishing #flugfiske #flyfishingphotography #onthefly #dryfly #flyfish #fish #fishingtrip #love #subscribe #like #share Flugusmiðjan Ívar’s Fly Workshop © Allur réttur áskilinn