У нас вы можете посмотреть бесплатно Hvað er Turing-próf? или скачать в максимальном доступном качестве, видео которое было загружено на ютуб. Для загрузки выберите вариант из формы ниже:
Если кнопки скачивания не
загрузились
НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием видео, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу
страницы.
Спасибо за использование сервиса ClipSaver.ru
Alan Turing er einn þekktasti og áhrifamesti vísindamaðurinn á sviði tölvunarfræði Hann hafði mikinn áhuga á spurningunni hvort tölvur gætu hugsað. Ólíkt mörgum öðrum sem rökræddu málið fram og til baka án niðurstöðu hannaði Turing próf sem ætti að geta svarað spurningunni afdráttarlaust. Prófið felst í því að athuga hvort tölva geti líkt nógu vel eftir manneskju til þess að blekkja mannlegan notanda. Í prófinu, sem nú er kallað Turing-prófið, situr mannlegur notandi við samskiptatæki sem er tengt við tvö lokuð herbergi. Í öðru herberginu situr manneskja, en í hinu er tölva. Notandinn getur spurt báða keppendurna spurninga með því að slá þær inn í samskiptatækið. Keppendurnir svara spurningunum á sama hátt og reyna að sannfæra notandann um að þeir séu manneskjan. Eftir einhvern tiltekinn tíma á notandinn síðan að segja til um það í hvoru herberginu er tölva og hvort inniheldur manneskju.