У нас вы можете посмотреть бесплатно Galdralöpp (variant) fluguhnýtingar myndband | Flugusmiðjan или скачать в максимальном доступном качестве, видео которое было загружено на ютуб. Для загрузки выберите вариант из формы ниже:
Если кнопки скачивания не
загрузились
НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием видео, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу
страницы.
Спасибо за использование сервиса ClipSaver.ru
Yður gefst nú áhorfandi góður loksins kostur á að styrkja rásina og hann Ívar Örn fyrir alla vinnuna, tímann og fyrirhöfnina sem liggur að baki. Þetta getur þú gert í gegnum PayPal-linkinn, eða ýtt á “SúperTakk” takkann. https://www.paypal.com/donate/?hosted... Í þessu myndbandi hnýtum við Galdralöppina í þeirri útgáfu sem hefur reynst mér langsamlega best. Ég kýs að hnýta fluguna svona og nota döbb í búkinn þar sem það hrindir frá sér vatni og flýtur almennt vel. Galdralöppin var upphaflega hönnuð eftir Jón Aðalstein Þorgeirsson en frá því að flugan kom fram á sjónarsviðið þá hafa hnýtarar um víða veröld hnýtt fluguna í mörgum útgáfum, m.a. með brúnni fjöður í vöf og svo mislitu foam í stélið. Galdralöppin er þekkt hérlendis og erlendis fyrir þann ágæta árangur sem hún hefur náð í veiði á urriða sérstaklega. Þó er rétt að minnast á þá staðreynd að samkonar fluga kom fram í Nýja Sjálandi fyrir um 50 árum rúmlega. Þannig má segja að höfundur Galdralapparinnar sé ekki að finna upp hjólið. Flugan hentar í straumvatn og þá í andstreymisveiði en þannig hef ég náð mestum árangri með henni sjálfur. Einnig hef ég prófað hana í stöðuvötnum og fengið nokkra fiska þannig. Ef þú ert á leið í urriðaveiði t.d. í Laxá Í Mývatnssveit eða önnur vatnsföll sem geyma urriða þá er Galdralöppin í stærðum 10-16 fínasti kostur. Flugan er einföld í hnýtingu og algjörlega þess virði að eiga í boxinu. Flugan minnir ekki á neitt í náttúrunni þótt hún sé nefnd eftir skorkvikindi sem kallast Bibio hopper (Ísl. Galdralöpp). Litirnir í flugunni eru litir sem vitað er að almennt virki sem í veiði, sérstaklega ef leitað er að fiski og virkar flugan þannig eins og attractor lure. Svarti og rauði liturinn minna á margar flugur en þó einkum á Black Zulu fluguna sem kom fram á sjónarsviðið fyrir meira en öld síðan. Uppskrift eins og ég hnýti fluguna: Höfundur: JAÞ Öngull: Ahrex FW580 #10 Þráður: UNI 8/0 svartur. Stél: Rauður foam cylender 6mm. Búkur: Svart Icedub. Hringvöf: Svartur hani saddle eða dryfly neck. Haus: Svartur. Uppskrift höfundar: Öngull: Nr. 10-18 Þráður: Svartur. Stél: Rauður Sybai foam svampur. Búkur: Svart antron vafið yfir foam búkinn. Hringvöf: Svartur hani saddle, þráðurinn svo vafinn gagnstætt fjöðrinni. Haus: Svartur. Til þess að hjálpa okkur að stækka, vinsamlegast hendið "like" á myndbandið, gerist áskrifendur að rásinni og deilið. Fylgdu okkur á Facebook: / ivarsflyworkshop Fylgu okkur á Instagram: / ivarsflyworkshop Fylgdu okkur á Twitter: / flyivar ______________________________________________________________________________________ Í samstarfi við Ahrex hooks og Flyfishingwaters.com https://www.ahrex.com https://www.flyfishingwaters.com Tónlist í myndbandi: https://www.bensound.com Email: flugusmidjan@gmail.com #flugusmidjan #IvarsFlyWorkshop #flyfishing #fishing #flytying #catchandrelease #trout #troutfishing #browntrout #flyfishingaddict #flyfishingjunkie #flyfishinglife #fish #rainbowtrout #flytyingjunkie #troutbum #flyfishingnation #fishinglife #nature #outdoors #flytyingaddict #bassfishing #flugfiske #flyfishingphotography #onthefly #dryfly #flyfish #fish #fishingtrip #love #subscribe #like #share Flugusmiðjan Ívar’s Fly Workshop © Allur réttur áskilinn