У нас вы можете посмотреть бесплатно Kennslubók í íslensku fyrir slóvakískumælandi или скачать в максимальном доступном качестве, видео которое было загружено на ютуб. Для загрузки выберите вариант из формы ниже:
Если кнопки скачивания не
загрузились
НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием видео, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу
страницы.
Спасибо за использование сервиса ClipSaver.ru
Út er komin kennslubókin Islandčina ma fakt baví! Jazyková príručka pre začiatočníkov (Ég fíla íslensku! Kennsluhefti fyrir byrjendur) eftir Branislav Bédi, verkefnisstjóri á íslenskusviði Árnastofnunar og stundakennara í íslensku sem öðru máli við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Kennslubókin er ætluð slóvakískumælandi nemendum sem vilja kynnast íslenskri tungu á fjölbreyttan hátt. Bókin byggir á hugmyndum um málakennslu í gegnum skynjunarfæri (e. sensory pedagogy) og inniheldur þýðingu texta úr íslensku yfir á slóvakísku og leggur áherslu á lestur og tal á A1-stigi samkvæmt Samevrópska tungumálarammanum. Þar af leiðandi hentar bókin til sjálfsnáms fyrir byrjendur. Útgefandi bókarinnar er Rannsóknarstofa í máltileinkun við Háskóla Íslands. Teikningar gerðu Maroš Ružička og Jakub Gašpar. Útgáfan er studd af verkefninu „Štúdio 25: Island“ (FBR03-098) sem er fjármagnað af Norskum samstarfssjóðum fyrir tímabilið 2014–2021.