У нас вы можете посмотреть бесплатно Leikhópurinn Lotta 2023 - Gilitrutt или скачать в максимальном доступном качестве, видео которое было загружено на ютуб. Для загрузки выберите вариант из формы ниже:
Если кнопки скачивания не
загрузились
НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием видео, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу
страницы.
Спасибо за использование сервиса ClipSaver.ru
2023! Leikhópurinn Lotta sýnir söngleikinn Gilitrutt á Lottutúni í Elliðaárdal alla miðvikudaga (*nema 26.júlí) í sumar klukkan 18:00. Sýningaplan fyrir allar sýningar á landinu má finna á www.leikhopurinnlotta.is. Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur, en hópurinn hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið þvert og endilangt. Í sumar eru liðin 10 ár frá því að Gilitrutt var frumsýnd hjá Leikhópnum Lottu en um er að ræða eitt vinsælasta verk hópsins frá upphafi. Í ævintýrinu um Gilitrutt fléttast saman sögurnar um geiturnar þrjár og Búkollu auk þjóðsögunnar um Gilitrutt. Að auki fá áhorfendur að kynnast bróður hennar Gilitruttar honum Bárði, fólkinu á bænum Bakka og fleiri skemmtilegum persónum úr Ævintýraskóginum. Gilitrutt er sýning sem er hugsuð fyrir alla aldurshópa og eiga þar fullorðnir jafnt sem börn að geta skemmt sér saman. Þar sem sýningarnar eru utandyra er um að gera að klæða sig eftir veðri, pakka smá nesti og hella vatni í brúsa og halda svo á vit ævintýranna í Ævintýraskóginum. Miðaverð 3.500 krónur, frítt fyrir 2ja ára og yngri. Bæði er hægt að nálgast miða á staðnum sem og á tix.is Hlökkum til að sjá ykkur! Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Rósa Ásgeirsdóttir, Sigsteinn Sigurbergsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson og Sumarliði V Snæland Ingimarsson Leikskáld: Anna Bergljót Thorarensen Höfundar tónlistar: Baldur Ragnarsson, Björn Thorarensen, Gunnar Ben og Helga Ragnarsdóttir Höfundar lagatexta: Baldur Ragnarsson Hljóðblöndun tónlistar: Axel „Flex“ Árnason Hljóðblöndun á sýningum: Þórður Gunnar Þorvaldsson Búningahönnun: Kristína R. Berman og leikhópurinn Danshöfundur: Sif Elíasdóttir Bachmann, Ágústa Skúladóttir & leikhópurinn Leikmyndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson Leikmunir: Leikhópurinn