У нас вы можете посмотреть бесплатно Hamrahlíðarkórinn - Sólsetursljóð или скачать в максимальном доступном качестве, видео которое было загружено на ютуб. Для загрузки выберите вариант из формы ниже:
Если кнопки скачивания не
загрузились
НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием видео, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу
страницы.
Спасибо за использование сервиса ClipSaver.ru
Hamrahlíðarkórinn/The Hamrahlid choir performs Sólsetursljóð by icelandic composer Jón Leifs. Poem by Jónas Hallgrímsson. Hóglega, hæglega, á hafsæng þýða, sólin sæla! síg þú til viðar. Nú er um heiðar himinbrautir för þín farin yfir frjóvga jörð. Halla þú, röðull, höfði skínanda, bráhýr, brosfagur að brjósti ránar, sæll og sólbjartur, sem þá, er stefndir bratta braut á bogann uppsala. Dreifðir þú, dagstjarna, dimmu nætur, glöð, af glóbreiðri götu þinni. Ljós fékkstu lýðum langar, á gangi, dagstundir dýrar, ó dagstjarna! Vaktir þú fugla og fögur blóm vaktir, söng þér að syngja og sætan ilm færa. Hníg nú hóglega, hægt og blíðlega, vegþreytir vindsala, ó vegstjarna! Hníg nú hóglega í hafskautið mjúka, röðull rósfagur, og rís að morgni, frelsari, frjóvgari, fagur guðs dagur, blessaður, blessandi, blíður röðull þýður! Hóglega, hæglega hníg þú að hvílu, skeiðþreytir skjótur, en skamma hríð þó bíð þú, að ástar- augum hlýjum bládöggvað brosir á brjóst jarðar. Drag nú hið blástirnda, blysum leiftranda salartjald saman yfir sæng þinni, brosi boðandi, að af beði munir bráðlega hresstur á himin snúa. Vonin vorblíða, vonin ylfrjóva drjúpi sem dögg af dýrðarhönd þinni, döpur mannhjörtu í dimmu sofandi veki, sem vallblómin vekur þú á morgni. Skrýð þig svo aftur skrúða gulldregnum, morgunskrúða menn gleðjanda; bú þig að öllu upp að koma fagur og fram bruna í fullu veldi.