У нас вы можете посмотреть бесплатно Smíða brú yfir Gilsá á Völlum – heimsókn á Austurland или скачать в максимальном доступном качестве, видео которое было загружено на ютуб. Для загрузки выберите вариант из формы ниже:
Если кнопки скачивания не
загрузились
НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием видео, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу
страницы.
Спасибо за использование сервиса ClipSaver.ru
Myllan- stál og vélar eða MSV er þjónustu og framleiðslufyrirtæki á sviði málmiðnaðar og vélaviðgerða við Egilstaði. Í MSV er vélsmiðja sem er vel tækjum búin og þjónustar alla almenna vélsmiðju vinnu, smíðar úr járni, ryðfríu stáli og áli. Iðan fræðslusetur fór á vettvang og ræddi við framkvæmdastjóra MSV, Unnar Elísson, sem segir frá starfsemi MSV og smíði brúar yfir Gilsá á Völlum á Austurlandi. Unnar segir að þjónusta MSV hafi aukist með tilkomu Kárahnúkavirkjunar og því er þar fjölbreytt starfsemi. Í MSV er líka vélaverkstæði sem tekur að sér vélaviðgerðir á vinnuvélum og vörubílum og blikkverkstæði sem tekur að sér alla almenna blikkvinnu. Hjá MSV vinna oftast allt að um 10 manns. Í stálsmíðinni eru þeir að sjóða saman brú og hófu verkið á síðasta árið. Smíði brúarinnar hefur tafist all verulega vegna stríðsins í Úkraínu og hafa þeir hjá MSV verið í vandræðum með að finna birgi. Brúarsmíðin er stærsta einstaka verkefnið sem MSV hefur tekið aða sér í járnsmíði. Unnar vonar að bráðlega verði hún hífð upp yfir ána en eins og margir kannast við er tímafrekt að búta niður heilar plötur í stað þess að fá efnið niðurskorið.