У нас вы можете посмотреть бесплатно Snædís Sunna Thorlacius - Fornvistfræði selja í Svarfaðardal или скачать в максимальном доступном качестве, видео которое было загружено на ютуб. Для загрузки выберите вариант из формы ниже:
Если кнопки скачивания не
загрузились
НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием видео, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу
страницы.
Спасибо за использование сервиса ClipSaver.ru
Erindi flutt af Snædísi Sunnu Thorlacius á fyrirlestraröð Félags fornleifafræðinga og námsbrautar í fornleifafræði við Háskóla Íslands 15. janúar 2025. Fornvistfræði selja í Svarfaðardal Seljabúskapur er talinn hafa flust til landsins með landnámsfólki og var stundaður um land allt uns hann leið undir lok um aldamótin 1900. Farið var með skepnur til selja á sumrin til þess að hlífa túnum yfir sumartímann og nýta úthaga til beitar. Flestar fornvistfræðilegar rannsóknir sem gerðar hafa verið hérlendis hafa átt sér stað á láglendi og við bæjartún en lítil áhersla verið lögð á seljasvæði, sem eru yfirleitt lengra inn til landsins og hærra yfir sjávarmáli. Í þessum fyrirlestri verða kynntar niðurstöður fornvistfræðilegrar rannsóknar á tveimur selstöðum í Svarfaðardal, Sökkuseli í landi Sökku og Selhjalla í landi Stóru-Hámundarstaða. Notast er við frjókornarannsóknir auk gjóskulaga- og setlagafræði til þess að endurskapa umhverfi og gróðurfar seljanna og greina þær umhverfisbreytingar sem hafa átt sér stað í nágrenni þeirra undanfarin 2000 ár. Á báðum stöðum var opinn birkiskógur fyrir landnám en á 10. öld varð mannlegra áhrifa vart, þó á ólíkan hátt. Hjá Sökkuseli varð mikil útbreiðsla víðikjarrs sem gæti verið afleiðing nýtingar á birki fram yfir víði. Gróðurbreytingar sem rekja má til beitar má sjá á báðum stöðum uns mólendið sem einkennir staðina í dag hóf innreið sína. Í Selhjalla átti sú þróun sér stað upp úr 1400 e. Kr. sem má mögulega rekja til fólksfækkunar.