У нас вы можете посмотреть бесплатно Rauða borðið 16. feb - Rósin, fjölmiðlar, karlmennska, kynlífssiðfræði, veikindaréttur, Trump-Evrópa или скачать в максимальном доступном качестве, видео которое было загружено на ютуб. Для загрузки выберите вариант из формы ниже:
Если кнопки скачивания не
загрузились
НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием видео, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу
страницы.
Спасибо за использование сервиса ClipSaver.ru
Mánudagur 16. febrúar Rósin, fjölmiðlar, eitruð karlmennska, kynlífssiðfræði, veikindaréttur, Trump-Evrópa Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður landsfélagsins Rósarinnar, aðildarfélags Samfylkingarinnar og formaður Afstöðu ræðir mögulegt klofningsframboð í Reykjavík en fulltrúum Rósarinnar var hafnað í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Þórhallur Gunnarsson blaðamaður hefur verið gagnrýninn á fyrirkomulag styrkja til fjölmiðla. Hann segir alls ekki tryggt að fjölmiðlastyrkir fari í blaðamennskuna sjálfa. Þórhallur ræðir veika stöðu einkarekinna fjölmiðla í samtali við Björn Þorláks. Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku sjónvarpsseríuna Berit - betri maður, sem fjallar um kynjastríðið, netofbeldi, slaufun, feminisma, incel, einmanaleika og margt sem einkennir okkar tíma. Katrín Pálma Þorgerðardóttir, doktorsnemi ræðir við Maríu Lilju um doktorsverkefni um heimspeki og kynlífssiðfræði út frá metoo byltingunni. Hefur samfélaginu orðið eitthvað ágengt með baráttunni eða hefur orðið bakslag? Erum við á villigötum með tilraunir til að pakka mannlegum samskiptum inn í sömu tvíhyggju og ríkir í lagaumhverfinu, hvað er samþykki? Reglulega blossar upp umræða um veikindi og veikindarétt sem sumpart er ójafn á einkamarkaði og hjá hinu opinbera. Einn fyrirlesara á þingi um þessi mál verður Gunnar Ármannsson lögmaður sem ræðir misnotkun réttarins í samtali við Björn Þorláks. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir helstu strauma af öryggisráðstefnunni í Munchen í spjalli við Gunnar Smára um heimsmálin.