У нас вы можете посмотреть бесплатно Kæri heimur - Lag Barnamenningarhátíðar 2023 или скачать в максимальном доступном качестве, видео которое было загружено на ютуб. Для загрузки выберите вариант из формы ниже:
Если кнопки скачивания не
загрузились
НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием видео, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу
страницы.
Спасибо за использование сервиса ClipSaver.ru
Lag Barnamenningarhátíðar í Reykjavík 2023 er samið af þeim Vigdísi Hafliðadóttur og Ragnhildi Veigarsdóttur úr hljómsveitinni FLOTT. Lagið er unnið í samstarfi við börn í 4. bekkjum í Reykjavík sem veltu fyrir sér spurningum um frið, allt frá innri friði hvers og eins til heimsfriðar. Lag: Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir Texti: Vigdís Hafliðadóttir og börn í 4. bekkjum í Reykjavík Útsetning og upptökustjórn: Ragnhildur Veigarsdóttir Hljóðblöndun og hljómjöfnun: Hafsteinn Þráinsson Leikstjórn, upptaka og klipping: Hákon Örn Helgason Texti: Kæri heimur Eru þið eins og ég þegar það þyrmir yfir mig? Þá þarf ég frið og ég finn hann stundum innra með mér þegar ég er úti að labba, þegar ég baka brauð með pabba, ligg í snjónum eða hlusta á hafið, heima í kósý eða að lesa í baði, teikna og hlusta á lag, klappa hundinum mínum eftir langan dag. Anda inn og anda út. Kannski ef ég byrja á mér hef ég áhrif. Viðlag Kæri heimur ég vil frið og að við lifum í sátt saman. Mig langar í ekkert stríð, þá geta allir krakkar haft gaman. Lalalalalala Erindi 2 Hugsið þið eins og ég um hvernig heimi ég vil búa í? Ég vil skapa frið en er eitthvað sem ég get gert? Hætta að stríða og hætta að meiða, jafn góð við alla og gera greiða, brosa og bjóða góðan daginn mótmæla því sem er ekki lagi! Hugsa um dýrin og rækta skóg, finnast fötin sem ég á vera nóg. Anda inn og anda út Kannski ef ég byrja á mér hef ég áhrif Viðlag Kæri heimur ég vil frið og að við lifum í sátt saman. Mig langar í ekkert stríð, þá geta allir krakkar haft gaman. Kæri heimur ég vil frið og við getum skapað hann öll saman. Þau sem breyta verða við! Þá geta allir krakkar haft gaman. Lalalalalala