У нас вы можете посмотреть бесплатно "Hlið" - minnisvarði um hina horfnu или скачать в максимальном доступном качестве, видео которое было загружено на ютуб. Для загрузки выберите вариант из формы ниже:
Если кнопки скачивания не
загрузились
НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием видео, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу
страницы.
Спасибо за использование сервиса ClipSaver.ru
Hlið er hugsað sem fyrsti þáttur í örþáttaröðinni “List á landi” þar sem ég tek fyrir áhugaverð listaverk, styttur og minnisvarða sem prýða íslenska landslagið. Markmiðið er að staldra við þennan samfélagslega spegil og hlusta á boðskapinn eða muna eftir þeim sem þykja svo ómissandi að þau voru steingerð. Hlustum á fortíðina, og sjáum hvort við getum ekki lært eitthvað! Um verkið í orðum höfundarins: “Eins og allir aðrir hef ég velt dauðanum fyrir mér;- því eina sem við vitum með vissu að hendir okkur. Ég hef lengi haft áhuga á hugmyndum manna um lífið og dauðann frá ýmsum hliðum, trúarbrögðum, eða eigum við að segja samfélögum. Þegar maður allt í einu á svo að gera listaverk sem tengist dauðanum tekur maður upplýsingar úr öllum þessum þáttum og dregur saman í undirmeðvitund eða yfirmeðvitund í eitthvað sem verður að listaverki. Völundarhúsið skiptir verinu í fjögur horn - heimshornin fjögur. Það myndast krossgötur í völundarhúsinu. Krossgötur eru auðvitað táknrænar. Völundarhúsið er táknrænt fyrir leitina að þroskanum og viskunni og alla þá leit sem aðgreinir manninn frá dýrunum. Völundarhúsið er líka tákn fyrir lífshlaupið, þannig að mér fannst það táknrænt fyrir akkúrat það sem við erum að fjalla um. Hliðið, eða skálinn í miðju völundarhússins, getur verið hlið milli vídda eða tilvistarstiga og skála má líta á sem einhvers konar sæluhús eða skjól. Ljósið sem kemur gegnum þakið þegar dimma tekur getur líka verið eins konar viti, sem er líka leiðarvísir. Það eru margar svona tilvísanir í verkinu og ef fólk kýs að sjá það þannig getur ljósið verið að koma af himni ofan. Fólk getur lagt í verkið ýmsa merkingu. Ég vildi hafa verkið opið, því það á að þjóna mörgum, óhað trúarbrögðum.” - Rúrí. Mrgbl. 172. Tbl. 2002 Tónlist: Jón Leifa. String Quartet No. 2, Op. 38, "Vita et mors": III. Salumessa, Eilifd (Requiem and Eternity) · Yggdrasil Quartet Aðrar heimildir: Mrgbl. 186. Tbl. 2003