У нас вы можете посмотреть бесплатно Genista - Litunarhrís í blóma - Skrautrunni - Sumarblóm или скачать в максимальном доступном качестве, видео которое было загружено на ютуб. Для загрузки выберите вариант из формы ниже:
Если кнопки скачивания не
загрузились
НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием видео, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу
страницы.
Спасибо за использование сервиса ClipSaver.ru
Genista - Litunarhrís Plönturnar eru viðkvæmar og dafna best í sendnum jarðvegi í sólríku horni. Þær eru með langar grannar greinar og bera falleg gul blóm sem standa 3-9 saman í þyrpingu og hefur plantan þann einstaka hæfileika í að blómstra aftur eftir að hafa verið klippt og snyrt eftir fyrstu blómgun og stendur því í blóma nánast sumarlangt. Hún þroskar fræ í 2-3 sm hörðum baunabelgjum sem skjótast langar leiðir þegar belgirnir springa. Gömul planta getur þroskað yfir 10.000 fræ á einu sumri. Blóm Litunarhris Genista tinctoria hefur að geyma litarefnið luteolin og blandað við álúm gefa blómin fallegan gulan lit sem Rómverjar notuðu til að lita ull og silki. Á 14 öld í Englandi var fundin upp aðferð til að lita ullarklæði djúpgræn en þá var blandað út í litinn frá annari litunarjurt, Litunarklukku Isatis tinctoria og þótti þetta alger bylting. Liturinn var kallaður Kendal grænn í höfuðið á þorpinu í Cumbriu þar sem liturinn var upphaflega búinn til. Það voru helst fátækar konur sem söfnuðu Litunarhrísi fyrir litunarsmiðjurnar og var það mjög erfið vinna því rífa varð plöntuna upp með rótum. Lítið fengu þær borgað fyrir allt erfiðið og var þekkt að þær létu þær liggja í vatni áður en þær fóru á viktina í litunarsmiðjunum til að auka þyngdina sem litið var illu auga. Litunarhrís var flutt til Ameríku þar sem það slapp út í náttúruna og er nú að finna víða eins og þurrum hæðum í Massachusetts. Þessi planta á sér langa sögu í Englandi. Til er saga sem er á þann veg að á 11. öld þegar Geoffrey, Greyfinn af Anjou hafði misst föður sinn í bardaga að þegar hann frétti það féll hann á hnén og reif upp plöntuna Genista scoparius og hrópaði grátandi "planta genista - planta genista" og stakk grein af henni undir hjálm sinn sem hann bar alla tíð síðan. Hann gerði plöntuna að tákni sínu og kallaði hana Plantagenet sem merki um auðmýkt og lítillæti í pílagrímsferð sinni til Landsins Helga þar sem hann refsaði sjálfum sér með því að berja bak sitt með svipu kallaða genét búna til úr sópsgreinum. Sonur hans Henry II sem ríkti í 35 ár, hélt við hefðinni og var þetta tákn -- symbol -- Ensku kóngafjölskyldunnar sem ríkti næstu 250 árin eða til ársins 1399 þegar Richard II. sem ríkti árin 1377-1399 sem hafði fyrst verið giftur Anne of Bohemia en tveimur árum eftir dauða hennar árið 1394 kvæntist hann Ísabellu sem var dóttir Frakkakonungs sem var þá aðeins var 6. ára gömul. Þegar Richard II. var allur og frændi hans Henry IV. tók við konungdæminu þá var genista tákn konungsfjölskyldunnar lagt af. Í Evrópu verpir Genista fiðrildið - Uresiphita reversalis - eggjum sínum á Litunarhrís Genista og Lúpínu. Agnarsmár lirfurnar sem eru grængular með svörtum og hvítum doppum í röðum sem langir hvítir broddar standa upp úr. Lirfurnar sem eru ónæmar fyrir eitrinu í plöntunni sem heitir cytisine alkaloids - éta laufblöð plantnanna upp til agna sér til lífsviðurværis og safna biturt bragðandi alkaloid eiturefnunum í líkama sinn án þess að drepast af því sjálfar. Eitrið gerir þær skelfilega bragðvondar og láta fuglar þær algerlega vera. Eitrið ferðast með lirfunni í gegnum púpunarferlið yfir í fullþroskað fiðrildi. Hérna er að finna fróðleik um eitraðar plöntur á Íslensku: http://www2.lydheilsustod.is/fraedsla... Litunarhrís, Ertuhrís og sópar (Genista tinctoria, G. germanica og Cytisus-tegundir: Litunarhrís og ertuhrís eru runnar sem geta orðið um 1 m á hæð og mynda fræbelgi. Ertuhrís hefur þyrnóttar greinar. Á sumum tegundum sópa eru greinarnar stífar og uppréttar en á öðrum skríða þær með jörð. Blómin eru oftast gul. Fræbelgir myndast. Geislasópur er algengur í ræktun hér. http://en.wikipedia.org/wiki/Genista_... http://www.cdfa.ca.gov/plant/ipc/weed... http://www.wisegeek.com/what-is-genis... The flowering tops produce yellow in wool. Leaves and young tops yield green. http://earthnotes.tripod.com/broom.htm On Halloween, children look out for witches on broomsticks. Besom brooms are made from birch handles with either birch twigs or long heather stems for the brush. The people on the heaths were literally "heathens" and socially undesirable so it was no great leap to put witches on brooms. Rural craftspeople took many resources from heaths because the poorer "common" people only had the right to remove them on the commons. : http://www.southdowns.gov.uk/__data/a...