У нас вы можете посмотреть бесплатно Ármann Guðmundsson - Allt upp á einn disk: Fornleifafræðileg tilraun á varðveislu lípíða или скачать в максимальном доступном качестве, видео которое было загружено на ютуб. Для загрузки выберите вариант из формы ниже:
Если кнопки скачивания не
загрузились
НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием видео, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу
страницы.
Спасибо за использование сервиса ClipSaver.ru
Erindi flutt af Ármanni Guðmundssyni á fyrirlestraröð Félags fornleifafræðinga og námsbrautar í fornleifafræði 12. mars 2025. Fornleifafræðingar rannsaka mataræði með margvíslegum hætti. Ein af aðferðunum eru rannsóknir og greiningar á lípíðum sem finnast aðallega í matarílátum. Lípíðar er fjölbreyttur hópur sameinda sem gegna margvíslegu hlutverki í náttúrunni. Allt frá því að vera byggingarefni frumuveggja til þekktra vítamína. Þó að lípíðar séu fjölbreyttur hópur eiga þeir það sameiginlegt að flokkast undir vatnsfælnar (e. hydrophobic) sameindir. Það er ein aðal ástæðan fyrir því hversu vel lípíðar varðveitast vel í fornleifafræðilegu samhengi. Rannsóknir og greiningar á lípíðum eiga sér nokkuð langa sögu erlendis en fremur stutta á Íslandi. Hvað veldur er ekki gott að segja en hugsanlega er ástæðan sú að rannsóknir á lípíðum í tengslum við mataræði til forna tengist ákveðnum efnivið mun sterkari böndum en nokkrum öðrum. Víða hafa þessar rannsóknir nánast einblínt á leirkerin enda lang algengasti efniviður mataríláta mjög víða. Svo var hins vegar ekki raunin á Íslandi. Annar efniviður eins og viður og steinn voru algengari lengi vel framan af. Ef íslensk fornleifafræði ætlar að nýta sér lípíða greiningar í rannsóknum á mataræði þarf fyrst að komast að því hver varðveisla þeirra sé í öðrum efnum en leir. Í fyrirlestrinum er greint frá rannsókn sem var hönnuð til að varpa ljósi á það viðfangsefni. Nú liggja frumniðurstöðurnar fyrir og margt áhugavert kom í ljós sem fjallað er um í fyrirlestrinum. Rannsóknin er fyrsti hluti doktorsnáms höfundar í fornleifafræði við Háskóla Íslands en viðfangsefnið er gildi lípíða greininga fyrir íslenska fornleifafræði.