У нас вы можете посмотреть бесплатно #111 или скачать в максимальном доступном качестве, видео которое было загружено на ютуб. Для загрузки выберите вариант из формы ниже:
Если кнопки скачивания не
загрузились
НАЖМИТЕ ЗДЕСЬ или обновите страницу
Если возникают проблемы со скачиванием видео, пожалуйста напишите в поддержку по адресу внизу
страницы.
Спасибо за использование сервиса ClipSaver.ru
Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningamála situr fyrir svörum í Spursmálum í dag. Seðlabankanum hefur ekki tekist að hemja verðbólguna sem er 5,2%. Er hann reiðubúinn að hækka vexti? Margt bendir til þess enda hefur bankinn það verkefni samkvæmt lögum að halda verðbólgu í landinu sem næst svokölluðu verðbólgumarkmiði sem er 2,5%. Hversu hátt geta vextirnir farið? Seðlabankinn ákvað í síðustu viku að halda meginvöxtum bankans óbreyttum í 7,25% og í stað þess að halda áfram því vaxtalækkunarferli sem hafið var á árinu 2024 virðist margt benda til þess að bakslag sé komið í þá þróun. Getur verið að bankinn þurfi enn á ný að hækka vexti upp úr öllu valdi? Í þættinum verður Þórarinn einnig spurður út í þær fyrirætlanir sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur uppi um að gera grundvallarbreytingar á almannatryggingakerfinu. Þær breytingar kallar Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar, ríkisfjármálalega tímasprengju. Þau Lára G. Sigurðardóttir, doktor í lýðheilsuvísindum, og Elías Blöndal Guðjónsson eigandi Santé eru einnig gestir þáttarins og takast á um sölu og neyslu áfengis í samræmi við núgildandi áfengislög. Þá mæta í settið þeir Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, og Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, og ræða það sem bar hæst í fréttum vikunnar.